helvítis
Ok reyni aftur en hef það bara styttra ef þetta skyldi fara aftur! Nú man ég afhverju ég nennti ekki að vera á bloggar.is vegna þess að allt datt alltaf út!!!!!
Hófý á afmæli í dag skvísan, lágum í sólbaði í garðinum með Sigrúnu og horfðum á sætu strákana í blaki á meðan
Ég er alltaf með heimþrá ... Langar stundum bara að pakka niður og fara! Skil þetta ekki .... Sakna mömmu og pabba bara of mikið og finnst eins og þetta sé bara aaaaaallt of langt í burtu!
Á eftir að hugsa mikið til Bjössa á morgun og ég vona svo að allt eigi eftir að ganga! Hann á það svo skilið og ég trúi ekki öðru ef við eigum að taka mark á draumunum okkar Mæju
held ég fari bara aftur á central, er búin að skrifa þetta milljón sinnum!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Get ekki skrifað á ljóshraða sko - hvernig er þetta hægt????
FLUTT AFTUR
mánudagur
Loksins mætt til Horsens
Best að sega svona frá hvað við höfum verið að bralla á þessum dögum .. þegar við lentum eftir mög gott flug í hádeginu og það var alveg geggað veður! Fórum beint á Hostelið og skiptum um föt og svona .. fórum svo í bæinn að sálfsögðu hehe fórum á Strikið og svona, fórum svo aftur á gistiheimilið og skiptum um föt og fórum í Tívolíið og fórum á Gavin Degrow tónleikana sem var voða gaman, sáum hann um daginn röltandi á Strikinu og Magnús hlóp alveg á eftir honum hehehe og tók myndir og síðan um 12 leytið fórum við með vini Magnúsar og hans kærustu á Istegade þar sem hann Dínó fékk sér Tattoo og eftir það fórum við heim bara og vöknuðum í gær og fórum í bæinn aftur, voða stuð og hittum Guðbörgu og Heiðrúnu þar á lestarstöðinni og fórum með þeim í Kristaníu .. það var bara gaman að sá allt þar og svo fórum við á Hostelið, skiptum um föt (alltaf að gera það) og fórum svo tvö bara í Tívolíið þar sem ég fór í nýa rússibanann og róluna .. algört ógeð en ég lét mig hafa það :) svo komu stelpurnar í bæinn og við hittum þær aðeins og fórum svo heim því við þurftum að losa herbergið klukkan 9 í morgun, fórum þá beint útá lestarstöðina og keyptum miða hingað, vorum í smá brasi við að finna sporið og hvort við ættum að fara á A B eða C því það stóð ekki á miðanum og það nennti eiginlega engin að hálpa okkur en loksins komumst við inn og settumst, þá kom konan og sagði okkur að við værum í vitlausum vagni og við fórum lengra þá inn og settumst þar sem engin var, þá kom hún aftur og sagði að þetta væri First Class þannig að við þurftum að færa okkur AFTUR!! lengst inní vagninn og eftir svona klukkutíma kom fólk inn og við vorum í þeirra sætum, þá stóðum við nú bara afganginn sem var eitthvað klukkutími!! Við vissum ekkert að við ættum að kaupa sæti líka en við munum það bara næst! þetta var allavega mög leiðinlegt því við vorum með soldið þungan og mikin farangur hehehe
Svo á morgun ætlum við í Rúmfó og skoða og skoða eitthvað dót til að kaupa og fara á skrifstofu skólans til að fá lykilinn af íbúðinni .. það verður gaman en ég er komin samt með pínu heimþrá ... þetta er soldið mikið og stórt hérna en það lagast nú örugglega með tímanum :) Vorum að rúnta áðan og ríkisfangelsið þar sem allir mestu krimmarnir eru er hérna rétt há, ekkert smá stórt!!
Ég ætla að vera dugleg að skrifa hérna inn, geri það aftur annað kvöld klukkan er að verða 11 og við erum orðin pínu þreytt .. vorum að tala við Bössa í gegnum Skype sem er var ekkert smá flott og hann setur það vonandi inn há mömmu og pabba flótlega :) það er alveg frítt og tölum bara eins og við séum að tala í síma
Ætla svo að seta myndir inn, erum ekki búin að kaupa minniskort þannig að við getum ekki tekið margar myndir í einu, þurfum alltaf að tæma eftir svona 13 myndir :)
Biðum að heilsa öllum, söknum ykkar mikið
Cause I make you crazyyyyy
Langt síðan ég bloggaði seinast og langt síðan ég fór í tölvuna !! Eða fór í tölvuna reyndar í fyrradag síðast hehehe en bara til að skoða
Erum líka búin að fá svar með íbúðina og það er íslenskur strákur í henni sem er að fara úr henni og sendi okkur mail í dag og sagði okkur að hann færi úr henni 20.júli og væri bara laus þá þannig að það verður æði að vera komin með einhvern stað !
Annars er voða lítið að frétta .. fórum í bíó í fyrrakvöld og The Break Up og ég mæli sko með henni!! ég grenjaði og allur pakkinn sko hehehe ég held að flestir geti fundið eitthvað í henni sem þeir kannast við ... allavega gerði ég það! hehehe
Svo er ég bara að vinna alla daga ... alveg virkilega leiðinlegt!!!! seinasti dagurinn hjá Magnúsi er á morgun og þá er hann hættur bara! Svo RVK eftir 2 vikur og erum kannski að fara í útilegu um helgina í afmæli þannig að það er svo sem nóg að gera! Tala nú ekki um stressið sem er að koma !!! Díses er alltaf að hugsa um hvað þurfi að gera og svona ..
Fór með mömmu í bæinn í dag og það var án gríns 19 stiga hiti í skugga á mælinum þar!! ég hélt ég myndi falla í yfirlið á staðnum bara! Fórum í Gallerí (17) sem tók sinn tíma að kalla Gallerí því það heitir það bara hér en allavega alveg klikkuð útsala og ég gat keypt mér svaka flotta skó, hlýrabol og bol fyrir ekki neitt eiginllega og mamma keypti sér skó og svo ermalausan kjól sem maður bindur .. svo var opið til 9 í kvöld og ég dró Magnús þangað áðan korter yfir 8 og ætlaði að kaupa skó handa honum og þá fór minn bara í verslunarstuð og við vorum bara komin í það að finna Diesel gallabuxur á drenginn og farið tvisvar inní mátunarklefa með hrúgu og svo þegar klukkan var farin að líða heyrðist í honum "við hefðum átt að koma fyrr"!!! ég var búin að nöldra í honum síðan 7!! en svo var keypt rosaflotta skyrtu, diesel gallabuxur og geggjað flotta skó
Nenni ekki að skrifa meira í bili
Ætla nú að fara .... hafið það gott
26.ágúst
Þá er ég mætt aftur ..
hef voðalega lítið verið í tölvunni seinustu daga, aðallega bara eitthvað að stússast .. En það hefur nú eitthvað gerst seinustu daga, kannski ég segi eitthvað frá því
Við erum búin að fá íbúð í Horsens, ekkert smá glöð yfir því
þetta er 2. herbergja íbúð bara við skólann held ég .. kollegium eitthvað hehe höfum bara séð tekningar af íbúðinni og hún lítur bara vel út
Eigum enn eftir að ákveða hvernig við ætlum að flytja dótið okkar og svona .. það kemur í ljós. Annars er ég orðin svolítið kvíðin fyrir þessu, hlakka rosalega til samt en er samt ekki að ná því að ég sé að fara að flytja að heiman (þó ég hafi bara gert það í smá tíma áður) og sé í öðru landi og allt, ekki hægt að hlaupa til mömmu og pabba bara einn tveir og tíu
En við komum aftur hehehe
Svo erum við flutt heim til mín .. gerðum það í gærkvöldi, vorum að hjálpa pabba allan gærdaginn, mamma kom með kræsingar og grillaði og ég veit ekki hvað og hvað!! Viddi litli var í heimsókn sem var bara æði!! Svo ætluðum við heim í sturtu og koma svo uppeftir (heim til mín) en svo bara allt í einu fórum við að taka til og áður en við vissum af, komin með allt dótið og fötin okkar fram á gang og með það allt uppeftir hehe erum svona að koma okkur fyrir hérna og mér finnst þetta bara æði
gott að vera hérna .. og svo hættir Magnús að vinna 14.júlí og verður með Ellý alveg í tvær vikur og svo förum við suður!! Ætla að vera þar með stelpunum, Mæju og Vidda og öllum eins mikið og ég get og svo verður flogið út eldsnemma 11.ágúst ! Heiðrún og Guðbjörg verða þá úti og það verður gaman að hitta þær
Svo átti Magnús afmæli 20.júní ooooog ég var nú ekki búin að gera neitt mikil plön hehe langaði að gera allt en gat ekki gert mikið heheehe svo var ég að vinna til 12 og þurfti þá að gera allt frá 12-hálf 4 þegar ég fór svo aftur að vinna, keypti gjöfina, köku, fór í Bónus og keypti osta og marens og allt til að búa til svona köku OG í sturtu!! Var alveg á fullu því ég var búin að vinna klukkan 7 og var að vera svona nokkurn vegin til þá
Svo átum við þetta allt með bestu lyst (allavega ég heheh)
Held að afmælisbarnið hafi bara verið sátt með þetta .. hann var nú kominn með langan lista af gjöfum en það var ekki hægt að kaupa allt hehe hefði verið annað kannski ef þetta hefði verið stórafmæli ![]()
Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra .. Stelpurnar að koma heim í dag brúnar og sætar ! Hlakka svo til að hitta þær!!!
Heyrumst síðar
Loksins komið almennilegt veður!!
Það var mikið að það kom almennilegt veður hérna!! Búið að vera bara rigning og kuldi ég veit ekki hvað lengi ... ekkert sérlega gaman að hjóla í vinnuna þegar veðrið er þannig
en maður lætur sig hafa það hehe
Við keyptum flugmiðann út í gær og þá er bara ekki aftur snúið!!
förum út með fyrri vélinni frá Keflavík 11.ágúst! flugin eru öll að hækka og þetta var ódýristi dagurinn á þessu bili þannig að við tókum það bara .. ég er eiginlega að fá taugaáfall yfir þessu öllu saman
við erum bara alltaf á netinu að skoða íbúðir þarna og við fundum eina um daginn og sendum mail (alltof seint) og þá er mögulega búið að leigja hana út en ekki búið að skrifa undir og kallinn ætlaði að senda okkur aftur mail ef það gengur ekki upp ... þannig að ég vona það bara
fín íbúð svona til að byrja með allavega og ódýr, bara í bænum og rétt hjá Stjána frænda sem er þarna líka, hann er í sama skóla og Magnús er að fara í og allt .. hann fann þessa íbúð fyrir okkur ![]()
Svo verður grillpartý hérna í Brekkugötunni um helgina ... veit svosem ekkki meira um það nema bara að ég veit ekki á hvaða grilli við grillum en það kemur fljótlega í ljós vonandi .. allavega á ég ekki svoleiðis hehehe Magnús ekkert voða spenntur yfir þessu því það verða bara stelpur ..
en það eru nú einhverjir strákar sem ég ætla að kveðja líka þannig að það er aldrei að vita
Þrusu helgi framundan og svo erum við kannski að spá í að fara suður einhverntíman áður en við förum út en erum bara ekki alveg búin að ákveða það neitt .. verður helst að vera þegar negrarnir verða komnir heim ... segi bara frá því seinna
En við komum allavega suður í byrjun ágúst og förum ekki út fyrr en föstudaginn 11. þannig að þá er líka alveg góður tími
Hellú and good morning
Ohhh ég er búin að vera heillengi að reyna að finna hérna hvernig maður setur inn bloggsíður hjá öðrum!!! Er búin að fara í allt sko og virðist ekkert kunna á þetta
En annars er bara allt meiriháttar að frétta héðan ... fyrir utan kannski að Magnús var í RVK en kemur aftur í kvöld .. búið að vera hin fínast helgi bara svona fyrir utan það hehehe ég sótti mömmu og pabba á flugvellinn á föstudaginn og þá hélt pabbi á litla dýrinu, afmælisbarnið kom bara með og það er búið að vera mjög gaman
Svo er ég búin að sofa í 28 klukkutíma þessa helgi!!! mér finnst það alveg þvílíkt mikið en ég er líka búin að fara snemma að vinna og seint að sofa alla vikuna og á föstudaginn klukkan 10 gat ég ekki haldið augunum opnum ... Hitti stelpurnar ekki neitt eða gerði ekki neitt
Ég er að hugsa um að fara að klæða mig og halda áfram að hanga heima hehehe er svo að fara að ÞRÍFA niðrí bæ sem veitir sko EKKI af!!!! Ef það er ekki munntóbak útum allt eru það sokkar hjá sjálfum snyrtipinnanum en ég ætla að gera allt hreint í dag svo það verði fínt þegar hann kemur heim
Ég vona svo að ég fari að koma bráðum til RVK ... áður en við förum í byrjun ágúst sko! Mig langar svooooooo og var EKKI beint sátt þegar ég þurfti að vera heima núna ... en ég ætla að reyna að finna einhverja ferð í sumar, mér finnst hálf glatað að fara suður í byrjun ágúst og fara svo út .. mig langar að fara allavega einu sinni áður því ég er svo hrædd um að ég eigi ekki eftir að geta gert allt á þeim tíma
þá er ég ekki að tala um Kringluna eða Lindina hehehe því ekki veitir af sem mestum peningum þarna úti!
Jæja ég ætla að hætta núna og vonandi var helgin hjá ykkur skemmtileg ..
Adios
Ég fíla dilla dilla
Kominn tími á smá breytingu hérna í blogginu!! Líst bara helvíti vel á þetta .. kellingin er hérna meira að segja!!!!!!!!!!
MAGNAÐ!! Hvernig líst ykkur á??
